Nei hæjj....
Myndirnar mínar
04.06.2008 19:29:59 / aldis85

Sól sól skín á mig

Er að læra undir prófið  - og hvað er þá passlegt að gera annað en blogga hehe ;)?

Sólin lét loksins sjá sig í gær og í dag og er víst sumarið komið hér í Burgos. Veðurspáin fyrir næstu vikuna er allt annað en slæm; sól, heiðskýrt og 27-30 stiga hiti - Akkurat þegar við íslendingarnir erum að yfirgefa pleisið! TÝPÍSKT!
Náði nú samt að næla mér í smá lit í dag og í gær svo ég kem nú ekki aaaalveg eins hvít heim og ég fór út ;)

Þessir síðustu dagar hafa bara verið nokkuð næs, eftir skóla á mánudaginn fór ég beint á pósthúsið og keypti mér kassa. Rauk svo heim og henti  oní hann heilum 11 kg af fötum og fór svo aftur niðreftir og skellti góssinu í póst! Er nú ekki að þessu því ég er buin að versla svo mikið, en finnst bara mun lógískara að borga rétt 5 þúsund kr fyrir að senda 11 kg til Íslands eða taka frekar sénsinn og láta Ryan Air rukka mig um yfirvigt- þeir rukka 12 pund á hvert kg og leyfa bara 15kg hjá sér út svo eg var komin með 4 og hálft kg í yfirvigt áður en ég kom hingað og keypti mér alveg e-ð þó ég hef nu oft verið duglegri í búðunum! Svo mér fannst þetta skynsamast, betra að borga 5000 fyrir 11 kg heldur en 18 þúsund!!
Í gær var síðan geggjað veður, sátum öll á plaza Mayor og sóluðum okkur og svo var aðeins rölt um bæinn. Í dag var síðan síðasti skóladagurinn fyrir próf og geggjað veður líka svo við skvísur skelltum okkur á ströndina og lágum í sólbaði yfir glósulestri - EKKI slæmt!
Er svo núna bara komin heim og að reyna að læra meira - sem obviously gæti gengið mun betur þ.s. ég er t.d. bara að blogga núna haha...en hef svosum engar massívar áhyggjur af þessu prófi - þetta reddast alltaf ;)

Býst ekki við að blogga meira héðan frá Spáni - er voða löt við þetta hér og var notla alveg hætt heima - hver veit nema maður detti af og til hingað inn aftur....en það verður allavega ekki oft......nema bara til að setja inn myndir svo þið getið fylgst með því hér :)

hasta luego!


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.06.2008 00:19:26 / aldis85

Big NEWS!

Ég er búin að breyta flugmiðanum mínum! Mun lenda á Íslandi fyrr en áætlað var, þ.e. FÖSTUDAGSKVÖLDIÐ 6.JÚNÍ KL 23:59!:)

Þetta hentar betur að alveg öllu leyti - þarf ekki að stoppa í London eina nótt og drösla mér og öllu dótinu mínu inní borg til Gunnhildar sys og til baka upp á völl, er ekki að koma heim rétt svo daginn áður en ég byrja að vinna og svo hefði það líka verið voða pointless að vera í herberginu hennar Gunnhildar en hún ekki á svæðinu! Hún er að fara til Vínar þessa helgi. Svo næ ég rétt svo líka að smella einum á mömmu og pabba en þau fara í 2 vikna ferðalag um Grikkland á laugardagsmorgninum! Þetta allt gerir það að verkum að ég kemst á
Sálarball á NASA 7.JÚNÍ
:D:D:D

Annars er mikið búið að vera í gangi hérna uppá síðkastið - á fimmtudaginn tókum við hörkudjamm þar sem föstudagurinn var Fiesta í Burgos og því frídagur. Föstudagurinn fór að mestu bara í leti og kósýheit og svo um kvöldið fór maður út að borða með hópnum og Pilar. Vaknaði snemma á laugardeginum þ.s. við fórum í dagsferð til San Sebastian - rosalega flott borg sem ég er til  í að heimsækja aftur í betra veðri. Svo komum við heim 11:30 um kvöldið dauðþreytt og ég fór heim og ætlaði bara að fara að sofa - en neiii þá var víst fólkið að plana að fara út á lífið og þ.s. þetta var nú síðasti sénsinn minn hér í Burgos ákvað ég á síðustu stundu að skella mér - var komin niðrí bæ rúmlega eitt og skreið heim rétt fyrir hálf7. Í dag lá maður svo bara í leti, lærði heimavinnuna og skellti sér svo í kvöld í matarboð til Röggu og fjölskyldu þ.s. við horfðum á leikinn. Sem betur fer erum við komin á Ólympíuleikana :D Svo komu Gummi, Einar, Árni og Sif og ég rölti með þeim upp á Karókí barinn sem er reyndar í leiðinni heim til mín.  Stoppaði með þeim þar í góðan klukkutíma en stakk svo af heim og er núna komin uppí. Þetta er nokkurn veginn updeitið hingað til. Á morgun hefst síðasta skólavikan - verðum í skólanum mán, þri og mið og svo er próf á fim :S sjáum til hvernig það fer....en hvernig sem það verður þá samt hef ég lært helling á að vera hérna og get alveg haldið ágætlega vel uppi samræðum við spánverja - sem var akkurat það sem ég vildi æfa mig í í þessari ferð :)

En jæja...farin að sofa

Buenos noches



» 2 hafa sagt sína skoðun

28.05.2008 20:41:38 / aldis85

Blogg segiði?

Jæja best að setjast við skriftir og drita því niður sem drifið hefur á síðustu daga.

Fimmtudagur 22.maí: Skólanum slúttað fyrr og við hoppuðum upp í rútu til að fara í vísindaferð í San Miguel bjórverksmiðjuna. Þetta var allt saman mjög fróðlegt og skemmtilegt og ekki skemmdi fyrir hversu vel var komið fram við okkur - þá ég ekki bara við allt smakkið sem við fengum en þau voru bara mjög rausnarleg og færðu okkur hverju og einu 2 flott bjórglös að gjöf áður en við yfirgáfum pleisið. Flott hjá þeim það! Um kvöldið var síðan undanúrslitakeppni júróvisjónsins og við auðvitað plönuðum júrópartý hjá Röggu sem missti sig í Gestgjafanum og skellti fram hinum ýmsustu partýveitingum...en hvað skeði svo?? NEINEI ...Spánverjar ákváðu að sýna bara frá fyrri undanúrslitakeppninni í sjónvarpinu svo við misstum af Íslenska framlaginu - vorum framan af í júróvisjónpartýi án sjálfrar keppninnar. Á 7.lagi komumst við svo loksins í netsamband og sáum lögin þannig og hentumst síðan í kosningapásunni yfir á Oliver til þess að sjá úrslitin en þeir eru með international kapal svo þetta reddaðist allt. Svo var tekið smá sigurtjútt um kvöldið sem var bara mjög skemmtilegt.

Föstudagur 23.maí: vaknaði of snemma þ.s. ég gat ekki sofið lengur þrátt fyrir að hafa legið andvaka og ekki sofnað hálf4! var komin á fætur hálf8 bölvandi og ragnandi yfir að geta ekki sofið....fór í skólann og beint þaðan héldum við Anna Birna, Katrín og Begga út á rútustöð og stukkum upp í lest til Madridar. Mikið var nú gott að koma aftur, tala nú ekki um að búa nákvæmlega á sama stað og rata ennþá allt...eða amk. þangað sem ég þurfti að rata hehe. Hostelið var FRÁBÆRT og ekkert smá skemmtilegt fólkið þar, bæði strákarnir sem reka það og einnig gestirnir sem við kynntumst. Stukkum upp með töskur og svo út í H&M við fyrsta tækifæri, og ekki var það slæmt að komast þangað. Eftir shopping spree var svo skotist heim í sturtu og sjæningu og svo röltum við af stað að finna restaurant. Fundum þennan líka fína stað loksins og reyndist það alls ekki röng ákvörðun ...þó fyrst væri mér ekki sama þ.s. þjónarnir voru heldur betur furðulegir! En þeir voru svo bara furðurlegir á næs hátt og vorum við öll orðin mestu mátar þegar við loksins yfirgáfum pleisið! Þetta föstudagskvöld var alveg geggjað skemmtilegt svo ekki sé meira sagt! Þegar við komum heim á hostel eftir eitthvað pöbbarölt var svo bara skellt sér í eftirpartý með strákunum þar og skriðið uppí ekki fyrren undir morgun :)
Laugardagur 24. maí: Vöknuðum snemma og tókum á móti Lilju sem joinaði okkur á laugardeginum. Svo var bara tekið "shop til u drop" á þetta og búðirnar (þó sérstaklega h&m) þræddar alveg hægri vinstri fram eftir degi. Í leiðinni fundum við líka stað til að horfa á júróvisjón á og smöluðum þeim íslendingum sem við vissum að kæmu á laugardeginum frá Burgos svo við myndum nu öll hittast og horfa saman á herlegheitin. Loks var farið heim á hostel og fíniserað sig áður en haldið var á þennan stað í Júrópartý. Var bara þvílíkt gaman þar þrátt fyrir að gengi Íslands í keppninni hafi farið fyrir ofan garð og neðan líkt og fyrri ár....það er bara ekki séns lengur fyrir lönd utan Austur Evrópu að vinna það er alveg ljóst. Nacho kom svo og hitti okkur á þessum stað og svo fórum við mörg saman yfir á annan klúbb og dönsuðum fram eftir kvöldi. Gangan heim var líka mjög skemmtileg...hittum ýmislegt skringilegt fólk og lentum í misskemmtilegum atburðum en ekkert sem var þó ekki fyndið haha. Aftur tók við eftirpartý með hostelfólkinu og svo bara skriðið upp í rúm.
Sunnudagur 25. maí :  Ekki er nú beint hægt að segja að risið á okkur skvísum hafi verið hátt þennan morguninn. Drifum okkur þó fram úr þ.s. nýta átti síðasta daginn í meira shopping sem og líka að lóðsa skvísurnar aðeins um - ekki gat ég látið þær koma til Madridar og sjá aðeins barina og búðirnar. Röltum nú samt bara um í hálfgerðu móki og skoðuðum í búðarglugga frameftir degi meðan heilsan var að lagast. Þegar því takmarki var náð tókst mér loks að taka stelpurnar í smá menningarferð; löbbuðum niður gömlu götuna mína, callé Arenal, niður að Óperu og gegnum hallargarðinn, sýndi þeim svo höllina Palacio Real, Dómkirkjuna og síðan Sjálfsmorðsbrúna sem er þar hjá (veit þetta hljómar mjög illa en hún dregur víst þetta nafn sitt af því að þetta er víst vinsæll kostur hjá fólki sem velur sér þessa leið :s). Síðan var bara haldið upp á hótel í chill í rúmlega klukkutíma og svo stokkið upp í rútu til Burgos. Mikið rosalega var ég nú þreytt þegar ég loksins skreið inn kl hálf12 um kvöldið, enda er maður ennþá að vinna upp hvíld eftir helgina.
Mánudagur 26. maí:  Vorum bara í skólanum til 12:40 þ.s. þennan daginn var skipulögð tvöföld vísindaferð. Á leiðinni að Santa Maria þar sem við áttum að hittast og fara rútuna byrjaði þessi líka engin smá rigningardemba, svo komu þrumur....og loks enduðu herlegheitin á HAGLÉLI!!!já þið lásuð rétt...á Spáni....í lok maí! ekki var ég sérlega sátt þá allavega. En já...við semsé ókum um 40 mín leið að Pascual mjólkurverksmiðjunni og þar klæddum við okkur upp í megaflott outfit haha og röltum um verksmiðjuna. Fengum svo gjafapoka áður en við fórum sem var fullur af djús, mjólk, jógúrti og þess háttar vörum frá Pascual. Síðan var förinni heitið á vínekru. Mér fannst mjög skemmtilegt að sjá þar og heyra hvernig ferlið er - og svo var okkur auðvitað boðið í smakk á þessum eðalvínum. Vorum að koma aftur til baka til Burgos um rúmlega 9 leytið að kvöldi og þá var bara haldið heim.
Þriðjudagur 27. maí: Eftir skóla fór ég aðeins heim í mat og þannig og svo í eftirmiðdaginn fór ég til Lilju og Kötu þar sem við tókum því rólega og héngum bara saman fram eftir kvöldi. Lilja eldaði alveg hreint dýrindispasta og eru stelpurnar mjög góðir gestgjafar!
Í dag var svo bara skóli til 11 en síðan var okkur skipt upp í hópa og við tók ratleikur um borgina - get nú ekki sagt að þetta hafi verið það skemmtilegasta en maður lifði það nú alveg af. Var boðin í hádegiskaffi einsog Rakel kallar það til hennar, Önnu Birnu og Sigrúnar Eddu - þær fá líka sér hrós hér fyrir hostessness! svaka klárar allar þessar skvísur í kringum mig! Dreif mig heim um 4 leytið og hitti nýja "bróður" minn hér úti - Kínverska stelpan fór semsagt heim til Kína á þriðjudaginn og í dag kom ameríkani sem er að fara að læra spænsku hér í 3 vikur -og nú toppar þetta allt - hann er ca. 60 ÁRA GAMALL! Pabbi þú hefðir bara getað skellt þér! en hann virkar næs greyið - voða fyndinn að reyna að habla espanol án USA hreimsins. Síðan henti ég mér bara inn í herbergi og lærði eins og brjálæðingur - hingað til hef ég ekkert gert nema bara heimavinnuna sem sett er fyrir en í dag tók maður sér tak og glósaði allar þessar þátíðir - vona að ég sé e-ð farin að skilja þetta betur. Kláraði það klukkan að verða hálf9 og nennti þá svo engan veginn út að ég hef bara haft það notalegt hérna inni í kvöld. Sit núna uppí rúmi undir sæng tilbúin í svefninn - en bíð eftir skypesímtali frá gamla settinu þ.s. maður hefur ekki heyrt í þessu fólki svo lengi - mætti halda að þau söknuðu mín bara ekki neitt?8|
haha nei djóóók...

EN já...þetta er svona það sem hefur verið í gangi upp á síðkastið. Núna er rétt um 1 og hálf vika eftir og þá er þetta bara allt saman búið - skrýtið. Helgarplönin eru enn frekar óráðin - ætluðum að reyna að finna hostel við stelpurnar í SanSebastian en það virðist ekki vera að ganga... í versta falli fer maður þá bara í dagsferðina sem búið er að bjóða upp á en hún er bara á laugardeginum og mig langaði að eyða allri helginni þar....kemur allt í ljós.

Bendi bara að lokum á linkinn hér til hliðar á myndasíðuna - búin að henda inn myndum frá sl. 2 vikum einsog ég benti á í síðustu færslu! hafið það annars bara gott! :)

Hasta luego


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.05.2008 23:11:12 / aldis85

Haglél - á Spáni - í MAÍ?

:cry:

Já það er satt - það kom HAGLÉL í dag þegar ég var að labba úti! Reyndar bara í mjög stutta stund en samt....

Madridarferðin heppnaðist mjög vel - frábærlega alveg hreint - en ég blogga á morgun um það - klukkan orðin margt og ég ætlaði bara að láta vita að ég er

Búin að setja inn myndir!! ---> Sjá link til hliðar á myndasíðuna

Þar finnið þið albúmið Burgos # 1 og lykilorðið er það sama og venjulega - bærinn sem ég bjó í í DK ;) sendið bara mail ef þið vitið það ekki - er þó ekki buin að skrifa texta við myndirnar en geri það líka við fyrsta tækifæri.

Saludos í biliiiii


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.05.2008 21:51:28 / aldis85

Que pasa?

Miðvikudagur að kveldi kominn og minni finnst orðið dálítið langt síðan ég dritaði nokkur orð hingað inn. Enn sem komið er hefur allt gengið vel og er ég ennþá bara sátt við lífið og tilveruna.

Laugardagskvöldið heppnaðist mjög vel. Ég fór niður á íbúðahótel til Röggu og stelpnanna með trillandi fluffutösku á eftir mér - eins og flestir vita eru gangstéttirnar á Spáni ekki gerðar úr sléttum flísum svo þið getið ímyndað ykkur óhljóðin sem bárust frá mér þegar ég strunsaði niður calle Vitoria...mér leið einsog ég væri með sláttuvélamótor á hæsta blasti í hendinni. Tók mig til hjá Röggu sem var svaka myndó og eldaði þessar líka mega góðu quesadillur handa okkur og svo kíktum við aðeins yfir til Fanneyjar og co. Þegar leið á kvöldið röltum við stelpuhópurinn svo á Oliver (ekki þennan á laugaveginum sko...hahaha svo fyndin ég veit!) og þar hittist semsé allur hópurinn. Eftir nokkra stund þar fórum við svo öll saman yfir á næsta bar við hliðina á sem var meiri dansstaður og voru nokkur spor stigin þar fram eftir nóttu. Ég gisti svo hjá Röggu þ.s. hún er ein í íbúð fram á sunnudaginn þegar maður hennar og dóttir koma hingað.
Á sunnudeginum vöknuðum við bara nett hressar og tókum lífinu með ró. Um hálf3 leytið fórum við svo nokkur saman á Pizza Hut og þaðan fór mín bara heim. Tók algera leti á þetta og lá bara allan daginn upp í rúmi að horfa á neighbours, gossip girl og meira á netinu.
Mánudagurinn: Venjulegur skóladagur tók við. Þar á eftir dreif ég mig heim og borðaði með henni Carmén - svo var tekin smá siesta eins og vanalega ;) Rölti svo niðreftir í bæinn og fór með Röggu í súpermarkaðinn. Settumst svo inn og tókum spjall, átum osta og kex og höfðum það kósí. Anna Birna, Rakel og Sigrún Edda komu svo til okkar og síðan skelltum við okkur allar saman að fá okkur einn nettan burger á Royal og svo ísrölt á eftir.
Á þriðjudaginn, þ.e. í gær, fengum við loksins ekta Spánarveður. Tók enga siestu í þetta skiptið heldur dreif mig niðreftir í bæinn um 4 leytið og svo var flatmagað á útikaffihúsi til að verða 6. Maður náði þá sem betur fer að næla sér í smá brúnku í þessari ferð. Óvíst þó hversu mikil í viðbót bætist við þ.s. veðrið hér er alveg óútreiknanlegt. Eftir relaxasionið fórum við á smá búðarölt og sýndi Lilja mér alveg geggjaða skóbúð - keypti 2 pör og á líklega eftir að fara að sækja amk 1 í viðbót þangað. Síðan bara haldið heim í koj og chattað við familíuna á Skype.
Í dag var svo búið að spá öðrum svona góðviðrisdegi svo við stelpurnar höfðum planað að rölta beint eftir skóla á strönd bæjarins - er semsagt í einum garði einhvers lags tilbúin strönd. Veðrið ákvað þó að stríða okkur smá og byrjaði að þykkna upp þegar við vorum að klára skólann - hentumst í súpermarkað og svo aðeins í afslöppun heim til stelpnanna. Þegar við Anna Birna, Ragga og Lilja loksins lögðum af stað byrjaði að hellirigna- stóð það þó yfir bara í rétt um 10-15 mín og svo bara glampandi sól og þægilegheit. Röltum heillengi - fundum m.a. sundlaug og íþróttahöll auk nautaatsvallar og fleira, skemmtilegt að breyta til og rölta svona í aðra átt heldur en að miðbænum svona eins og einu sinni. Fundum loksins ströndina og hún lofar góðu - vonandi að við fáum fleiri daga til að nýta hana betur. Svo var rölt af stað heim og var ég ekkert smá þreytt þegar ég kom um 8 leytið í kvöld enda búin að vera á labbinu meiri hluta dagsins. Fann síðan enga stöð til að fylgjast með leiknum í TVinu en Maggi var svo góður að lýsa leiknum fyrir mér gegnum msn - takk fyrir það :) og við erum MEISTARAR:)
Go Man. Utd.!!!

Um helgina er planið að fara til Madridar - erum búnar að panta okkur gistingu á nýju Hosteli þar sem er bara rétt handan við hornið þar sem ég bjó hér fyrir 2 árum - hlakka mjög til að kíkja á borgina aftur og rifja upp stundirnar frá 2006:) og líka að kíkja í HogM og á næturlíf Madridar - svo ætlar Nacho líka að reyna að kíkja á mann svo þetta verður nú án efa skemmtileg helgi þó veðurspáin gæti reynst nokkuð slæm - á reyndar eftir að tékka á nýjustu breytingum. 

Jæja, held að þetta sé komið nóg af fréttum í bili - á í veseni með myndavélina mína -þ.e. er ekki með snúru til að setja myndir yfir á tölvuna svo ég veit ekkert hvort ég nái að gera það e-ð meðan ég er hér, næ kannski að redda því á e-n hátt - en ég fæ þó að stela hér nokkrum myndum frá Önnu Birnu, Sunnu og svo Facebook albúminu - vona að það sé í lagi stelpur mínar :)


        
Við Dagný á laugardagskvöldið


Ég, Lilja og Katrín á handboltaleiknum í Leon 14.5.



Hópurinn ásamt Fúsa eftir leikinn - var e-r að tala um H&M ;)?


Við Lilja illa sáttar! ...haha vá flottur svipur Aldís!!


Við Ragga á laugardagskvöldið


Hasta luego :D


» 5 hafa sagt sína skoðun

17.05.2008 14:49:47 / aldis85

Kominn tími á fréttir!

Jæja, þá gefst loksins smá tími til að setjast niður og skrifa smá fréttir héðan.
Fyrsta vikan af skólanum liðin og hefur bara gengið vel að aðlagast. Maður bablar alltaf meira og meira á spænsku og er það bara gaman, þó svo maður tali ekkert endilega rétt þá skilur fólkið mann alveg. Fékk einmitt hrós frá spænsku "múttunni" um daginn fyrir að skrifa vel sms á spænsku og fyrir að geta haldið uppi samræðum og þannig eftir svona stuttan tíma :D Héðan er allt gott að frétta - gaman í skólanum þó það sé alveg erfitt líka, svo er bara tekin siesta í rólegheitunum að loknum skóla og svo spókað sig um í bænum. Veðrið mætti samt alveg vera betra, það er eitthvað að stríða okkur - virðist sem við höfum tekið íslenska veðurfarið með að því leyti að það er sífellt að breytast - eina stundina er sól, svo allt í einu komin hellidemburigning, svo aftur sól, svo aftur rigning o.s.frv. Fengum einn alveg regnlausan og geggjaðan dag á mánudaginn - annars hefur alltaf rignt eitthvað þó líka hafi skinið sól að mestu. Þó er alveg dágóður kuldi í loftinu og eiginlega bara hægt að líkja veðrinu síðustu daga við íslenskt vorveður. Fengum líka að vita það að Burgos er ein af 2 köldustu borgum Spánar - haha flott að senda hóp sólarþyrstra íslendinga þangað!

En semsagt- skólinn hefur hingað til gengið vel og er ég bara bjartsýn á þetta allt saman. Á miðvikudaginn brutum við þetta síðan svolítið upp; vorum bara í skólanum til 11 og svo var farið með okkur í vísindaferð í Gala Keramikería eða e-ð´þannig - héldum að við værum að fara að sjá svona keramikvörur og þannig en nei þetta reyndist svo vera verksmiðja sem framleiðir klósett, baðkör, sturtur og þess háttar. Var nú ekkert spes skemmtileg ferð en þó ekkert alslæm heldur. Beint eftir að henni lauk létum við 15 krakkar henda okkur út rétt hjá lestastöðinni þar sem við ætluðum til Leon. Lestinni seinkaði um klukkutíma en loksins kom hún og við komumst á leiðarenda eftir tæpl.2 tíma ferð. Þá höfðum við ca.2 tíma til að spóka okkur um í Leon - vorum búnar að heyra af því að H&M væri þar svo það var bara skellt sér í mollið og aaaaaaaaðeins shoppað - ekki missti ég mig neitt samt, bara 2 kjólar, skyrtukjóll og svo smádót einsog t.d. regnhlíf sem er alveg nauðsynleg hérna einsog veðrið hefur verið. Svo var ferðinni heitið á leikinn og var þetta alveg hreint ótrúlega skemmtilegt (ekki skrítið, alltaf er gaman að horfa á handbolta!) en hefði þó mátt enda öðruvísi þ.s. Leon náði að tapa nánast unnum leik niður á síðustu 5 mín. en höfðu verið yfir allan tímann. En við fengum spennandi og skemmtilegan leik og alveg dramatík og læti - ekki leiðinlegt það. Var líka gaman að hitta Gunnsa og Fúsa þarna - hann lóðsaði okkur einmitt niður á lestarstöðina eftir leikinn ....á leiðinni sáum við fullvel starfsemi gleðikvennanna í Leon hahaha. Maður var svo að skríða heim í rúm kl hálf3 um nótt alveg búinn á því eftir aðra 2 tíma lestarferð til baka til Burgos.
Á fimmtudaginn var svo bara skóli og þreyta í gangi, kíkti einsog hina dagana niður í bæ með stelpunum og ætlaði svo bara að taka kvöldið rólega - en það endaði samt í því að ég kíkti á viðskiptafr.krakkana og fórum svo aðeins á Oliver (barinn sem við hittumst á hérna, fréttum að íslendingarnir í fyrra hefði átt þennan stað svo við ætlum bara að eigna okkur hann líka) og hittum hitt liðið - ég var samt alveg róleg, enda ótrúlega þreytt og algerlega búin á því - kom heim rúml.1 og bara beint í koj.
Í gær tók ég það svo rólega hér "heima" eftir skóla, og kíkti svo á Röggu og þær en flestir búa semsagt annað hvort á vistinni í klaustrinu eða á íbúðahóteli hér við miðbæinn. Við Ragga  fórum út að rölta og fundum okkur ítalskan stað og fengum langþráða dýrindis pizzu - á alveg eftir að fara á þennan stað aftur. Síðan tók við smá meira rölt og svo bara heim á íbúðahótel og sest aftur inn hjá Lilju og Katrínu og spjallað smá áður en ég hélt heim á leið rétt um miðnætti. Í dag þurftum við svo að mæta niðrí miðbæ í 2 tíma göngutúr um borgina - skyldumæting - frekar fúlt þ.s. ég var buin að fá alveg sight seeing tour með Carmén og var að sjá allt þetta dæmi í 2.sinn! síðan settumst við nokkur inn á einn tapasbar og smökkuðum smá tapas. Rölti heim með Röggu og kíktum svo smá í búðir og svo var ég að koma hingað heim og ætla að taka mér smá siestu áður en ég hoppa í sturtu og tek mig til fyrir kvöldið - er víst mikil gleði framundan hehe :)   Alveg merkilegt hvað maður er fljótur að detta inn í þetta siestumunstur - mjög þægilegt að liggja bara og slappa af smá svona yfir miðjan daginn - mér hefur samt reyndar ekkert tekist að sofna að ráði en þetta er samt voða kósý.

En jæja....ætli þetta sé ekki komið gott í bili - er búin að skrifa um allt sem gerst hefur síðustu daga. Vona að allir hafi það gott og að þið kollurnar mínar skemmtið ykkur vel í kvöld hjá Unni :)

Hasta Luego





» 6 hafa sagt sína skoðun

13.05.2008 22:28:28 / aldis85

Spænskt gsm númer!!

búin að fá mér spænskt nr -


(0034) 685771760


Farin að sofa - blogga líklega á fimmtudaginn þ.s. á morgun er förinni heitið til Leon beint eftir skóla og svo farið á handbóleikinn þar :D Kem heim seint annað kvöld !!

hasta luego...


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.05.2008 20:21:37 / aldis85

Mætt á svæðið!

Jæja eftir langt ferðalag er maður loksins kominn til Burgos. Flaug í gærmorgun til London og eyddi deginum inní borg með Gunnhildi sys og Marianne í Holland park í geggjuðu veðri í ekta picknick. Kom reyndar smá hitaskúr en þá hljóp maður bara undir tré og beið í þessar mínútur. Fórum svo á langþráðan Nandos (namm!) og svo hoppaði ég upp í lest til að hitta Dagnýju og Beggu aftur sem voru svo góðar að leyfa mér að gista með sér á hótelinu við Stansted flugvöllinn. Svo var vaknað snemma í morgun og komið sér þessi 30 skref yfir á flugvöll - tékkað inn hjá Ryan Air og hoppað upp í vél til Spánar. Sátum í rútu í 1,5-2 tíma og hittum fjölskyldurnar okkar.

Ég er bara mjög heppin held ég, gisti hjá konu sem heitir Carmen. Hún á 2 börn sem eru 29 og 21 árs, eru bæði í Madrid en strákurinn (sem er yngri) var heima núna um helgina svo ég hitti hann áðan. Auk þess er svo hér á heimilinu 13 ára gamall hundur, algjört krútt, og svo 1 árs köttur sem er ALVEG eins og hann Zígó minn nema bara helmingi mjórri ( enda hitt dýrið algjört flykki!). Auk þess er hérna líka kínversk stelpa, skiptinemi en ég veit ekki hve lengi.  Er með fínt herbergi og íbúðin fín, bý á ágætis stað - ca.korters labb í miðbæinn en væri líklega 30-40 mín að labba í skólann - tek reyndar líklega bara businn  sem tekur 15-20mín þ.s. stoppistöðin er hér rétt fyrir utan (eða bara sníki far hjá Carmen, hún vinnur á skrifstofu skólans).

Eins og flestir vita er aðalmáltíð spánverja í hádeginu - í dag smakkaði ég í fyrsta sinn (og samt búin að koma OFT til Spánar!) Paellu!! verð að viðurkenna að mér fannst hun ekkert frábær þ.s. var svo mikið af fiski í henni - en maður fer ekkert að segja Carmen frá því haha. Svo var tekin siesta og lagt sig smá, og svo farið út. Hittum vinkonu Carmen sem er með eina íslenska stelpu hjá sér sem heitir Dagný og við 4 tókum langan göngutúr um alla borgina. Skreið heim núna um 9 alveg uppgefin, fékk mér að borða og svo er það bara núna talvan og langþráður beddi!

Á morgun er e-r dagskrá fyrir okkur upp í skóla, ekki alveg með á hreinu hvað það er en eflaust e-ð spennandi.  Svo á miðvikudaginn ætla ég að reyna að komast til Leon á handbóleikinn hjá Fúsa Sig og hann Gunnsi verður einmitt staddur þar líka :)

En jæja - þetta er orðinn ágætis pistill í bili - orðin uppgefin og ætla að drífa mig í kojuna!

Hasta luego




» 5 hafa sagt sína skoðun

07.05.2008 10:30:43 / aldis85

Styttist í Burgos

Jæja nú er ég búin að klára prófin og bíð eftir að fara til Spánar - en brottför er áætluð til London á laugardagsmorguninn og svo áfram til Burgos á sunnudag.

Prófin kláruðust á mánudag og við fórum nokkur úr skólanum saman í bústað í Miðhúsaskóg þann sama dag - svaka fjör og skemmtilegheit. Svo í gær fóru krakkarnir heim og ég ætlaði að kíkja í stutta heimsókn á Geysinn minn....sú stutta heimsókn varð aðeins lengri hmm....var komin um hálf1 á hádegi og var ekki að fara heim fyrren rúmlega hálf12 um kvöldið! haha...já það er svona, maður ílengist alltaf  enda er alltaf svoooo gott að koma þangað og hitta fólkið sitt! Hjálpaði líka aðeins til í búðinni - er verið að fara gera svaka breytingar þar, spennandi að sjá hvernig það kemur út. Svo komu dönsku prinshjónin í Geysisstofu og kíktu um í búðinni eftir á - ekki leiðinlegt að sjá þau, enda svo krúttlegt par :) 
Anyways - ætlaði bara að henda smá nýju hérna inn svona til að venja mig við að blogga aftur þ.s. ég ætla að gera það næsta mánuðinn á meðan ég verð á spáni :)

hilseeeeen


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.04.2008 20:40:15 / aldis85

NÝTT LÍF

Mikið rétt.... þessi bloggsíða hefur hér með öðlast nýtt líf... ( að minnsta kosti tímabundið :S )

Þannig er mál með vexti að ég er á leið til Burgos á Spáni í 4.vikur eins og þið flest vitið og ætla því að drita einhverjum fréttum hingað inn á meðan. Fer út þann 10. maí og kem ekki heim aftur fyrr en þann 8.júní - lofa ekki að það verði mikið líf hér fram til 10.maí og eins eftir 8.júní en  nú getið þið bloggþyrstu ( haha ábyggilega bara þú Gréta! ) fylgst með manni hérna allavega á meðan maður er í landi Spanjólanna!
Verið svo dugleg að skilja eftir KOMMENT svo maður viti að maður sé að skrifa fyrir e-ð fólk þegar maður verður útí í sólinni....

En hvað um það - hef ekkert meira að segja í bili enda ennþá föst á þessum klaka..

Hasta Luego



» 3 hafa sagt sína skoðun

06.06.2007 11:12:34 / aldis85

þetta er alveg dautt

nenni þessu ekki....hætt ....allavega yfir sumarið.....

 

...


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.05.2007 01:10:20 / aldis85

Uppfærsla!

Hef lítinn tíma svo hér kemur smá update:

  •  lokahóf meistaraflokkanna  búið, tókst vel
  • byrjuð að vinna á Geysi
  • Búin að þeysast mikið á milli Geysis, Selfoss og höfuðborgarinnar síðustu daga
  • Búin að fá einn frídag sem var dagurinn í dag, vinna kl 10 í fyrramálið= leggja af stað hálf9, vakna 8 á sunnudagsmorgni:S
  • Ekki enn búin að fá síðustu einkunnina úr skólanum:evil:
  • er stundum alltof bissí finnst manni...
  • leikjanámskeiðin byrja 11. júní....verð líklegast á Geysi fram til svona 4. júní eða aðeins lengur..
  • Sumarið er eiginlega alveg komið :)

Sjáumst seinna ....

» 6 hafa sagt sína skoðun

11.05.2007 14:48:45 / aldis85

EINTÓM GLEÐI!

 

Ég féll EKKI í lífeðlisfræði!!

 

:D:D:D:D:D:D:D:D:D:D:D:D:D

 

...náði meirasegja mun betur en ég þorði að vona ;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

09.05.2007 12:56:03 / aldis85

...

 

ÉG ER BÚIN Í PRÓFUM!!

 

:)

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

05.05.2007 21:10:07 / aldis85

fokkin' próf

 

Var bara ENGAN veginn í skapi í gær til að blogga...en allavega..lífeðlisfræðin er búin og er ég POTTÞÉTT að fara í endurtekt í henni býst ég við..ásamt meiri hluta bekkjarins! Þetta var alveg ógeðis - viðbjóðslega ósanngjarnt próf....þú reynir ekki að kenna fólki ákveðið efni heilan vetur og leggja þvílíka áherslu á sum atriði, segja að þau séu mikilvægust og þau þurfi að kunna alveg extra vel, og lætur svo EKKERT af áhersluatriðunum vera á helv..prófinu!!!ASNALEGT....

En út í annað...litlu skvísurnar mínar að keppa á morgun....inn á milli leikja verður víst bara sérkennslulærdómur...how fun! Í gær ákváðum við Inga pinga annars að slá þessu upp í kæruleysi og "fagna" lífeðlisfræðiógeðinu með að fara á Sálina á Players...mjög svo skondin ferð haha...en maður var nú bara rólegur...drakk einn drykk og hefði bara allt eins getað verið á bíl...en það var mjög gaman engu að síður.

Jæja ætla að reyna að starta mér smá í sérkennslunni....

 Aldís lífeðlisfræðingur - EKKI!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9
Heimsóknir
Í dag:  1  Alls: 61690
Klukkan
Dagsetning
29. janúar 2012